
Morgunhanar njóta þess ríkulega í nóvember að taka daginn snemma og horfa til himins
Morgunhanar munu njóta þess ríkulega að taka daginn snemma í nóvember 2027 þegar Mars, Júpíter og Venus skína skært auk tunglsins. Mars og Júpíter eru í Ljóninu en Venus í Meyjunni.

Morgnana 2. og 3. nóvember mynda tunglið, Mars, Júpíter og Regúlus í Ljóninu glæsilega röð hátt á suðurhimni um kl. 08:00. Tunglið er minnkandi sigð og að morgni 3. nóvember er Regúlus, skærasta stjarna Ljónsins, rétt fyrir ofan það. Júpíter er lang skærastur en Mars áberandi rauðgulur.

Að morgni laugardagsins 7. nóvember verða Venus, tunglið og Spíka, skærasta stjarna Meyjarinnar, þétt saman. Hnettirnir eru þó mjög lágt á lofti í suðaustri og liggja einna best við athugun um kl. 08:00. Gæta þarf þess að hvorki fjöll né byggingar byrgi sýn, svo lágt á himni eru þau.
Venus hækkar á lofti og fjarlægist Spíka. Í kringum 15. nóvember bætist Merkúríus í hópinn, mjög lágt á lofti.

Mars nálgast Júpíter næstu nætur á meðan tunglið lækkar á lofti og færist nær Venusi. Minnst verður bilið milli Mars og Júpíters mánudagsmorguninn 16. nóvember. Þá skilur aðeins ein gráða á milli þeirra. Prófaðu að beina stjörnusjónauka að þeim. Þá verður útsýnið í gegnum handsjónauka líka mjög fallegt.

Stefnumót tunglsins við Mars, Júpíter og Regúlus endurtekur sig mánudaginn 30. nóvember. Hnettirnir eru allir svo þétt saman á morgunhimninum þennan dag (rétt rúmlega 5°) svo 7x50 handsjónauki sýnir þá alla í einu. Kíktu!
Að morgni 4. og 5. desember heldur sýningin áfram þegar minnkandi tunglið hittir fyrir Venus og Spíka á morgunhimninum. Glæsilegt!
Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.