
Loftsteinadrífan Tárítar er þekkt fyrir fá en björt og hægfara stjörnuhröp.
Sæktu nýja appið okkar fyrir Android eða iOS!
Frá lokum september og inn í desember stendur yfir loftsteinadrífan Tárítar (e. Taurids). Tárítar eru ólíkir öðrum drífum því hún er í raun tvær aðskildar: Syðri Tárítar, sem standa yfir frá október og fram í byrjun nóvember, og Nyrðri Táríta sem standa yfir frá seinni hluta október og fram í miðjan nóvember.
Syðri Tárítar ná hámarki 5. nóvember en nyrðri Tárítar 12. nóvember. Að kvöldi 5. nóvember er því góð skörun á drífunum tveimur og þá kjörið að horfa eftir þeim, sem og kvöldin í kring. Loftsteinadrífur reyna á þolinmæðina því útilokað er að vita nákvæmlega hvenær stjörnuhröp sjást. Því er mikilvægt að gefa sér tíma og helst horfa til himins í tvær til þrjár klukkustundir.
Tárítar er líka veik loftsteinadrífa. Þegar best lætur má búast við, að sjá aðeins á bilinu 5 til 10 stjörnuhröp á klukkustund. Hún nálgast Jörðina aftan frá svo drífan er álíka kröftug á morgnana og kvöldin.

Stjörnuhröpin færast þess vegna óvenju hægt yfir himininn (30 km/sek). Drífan er líka þekktir fyrir sérlega björt stjörnuhröp og vígahnetti sem margir taka eftir og rata stundum í fréttirnar.
Árið 2005 komust Tárítar í fréttir í víða um heim vegna þess hve margir bjartir vígahnettir sáust þá. Að minnsta kosti einn virðist hafa rekist á næturhlið tunglsins 7. nóvember það ár en hann var sennilega 12 cm breiður og skall á tunglinu á 27 km hraða á sekúndu. Úr varð líklega 3 metra breiður og 40 cm djúpur gígur.
Drífan á að mestu rætur að rekja til halastjörnunnar 2P/Encke. Nýlegar rannsóknir benda til þess að agnastraumar frá öðrum fyrirbærum, svo sem jarðnándarsmástirnum, brot úr smástirnaárekstrum og kulnuðum halastjörnukjörnum, blandist saman og leggi sitt af mörkum til drífunnar.
Geislapunktar drífanna (e. radiant), þaðan sem stjörnuhröpin virðast öll stefna, er í stjörnumerkinu Nautinu (e. Taurus) og dregur drífan nafn sitt af því. Geislapunktur nyrðri Táríta er rétt suðvestan við Sjöstirnið en syðri Táríta milli stjörnumerkjanna Hvalsins, Hrútsins og Fiskanna. Drífan er í hámarki nálægt Hrekkjavöku og er stundum vísað til hennar sem Hrekkjavöku-vígahnettina.

Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.