Iceland at Night

Hvað sést á stjörnuhimninum yfir Íslandi árið 2025?

Deildarmyrkvi á sólu, tunglmyrkvi og bjartar reikistjörnur prýða íslenska stjörnuhiminninn árið 2025

Árið 2025 verður frábært fyrir áhugafólk um stjörnuskoðun. Við fáum að sjá talsverðan deildarmyrkva á sólu, almyrkva á tungli og fallegar samstöður bjartra reikistjarna, svo nokkuð sé nefnt. En byrjum á tunglinu.

Fullt tungl árið 2025

  • 13 janúar
  • 12 febrúar
  • 14 mars - Almyrkvi á tungli
  • 13 apríl - Fjarlægasta fulla tungl ársins, 406.006 km
  • 12 maí
  • 11 júní
  • 10 júlí
  • 9 ágúst
  • 7 september - Almyrkvi á tungli (sést ekki frá Íslandi)
  • 7 október
  • 5 nóvember - Nálægasta fulla tungl ársins, 356.980 km frá Jörðu, stundum kallað ofurmáni
  • 4 desember

Jafndægur og sólstöður

  • Vorjafndægur: 20. mars kl. 09:02
  • Sumarsólstöður: 21. júní kl. 02:42
  • Haustjafndægur: 22. september kl. 18:20
  • Vetrarsólstöður: 21. desember kl. 15:03

4. janúar: Tunglið myrkvar Satúrnus og Venus fylgist með

Árið 2025 hefst á fallegum stjörnumyrkva þegar tunglið gengur fyrir Satúrnus síðdegis þann 4. janúar. Satúrnus hverfur á bak við tunglið kl. 17:19 og birtist á ný tæpri klukkustund síðar, kl. 18:09. Tunglið er vaxandi sigð í ársbyrjun og skammt frá skín Venus skært. Fylgstu með myrkvanum með stjörnusjónauka. Útsýnið verður alveg sérstaklega glæsilegt!

Venus, tunglið og Satúrnus á kvöldhimninum 4. janúar 2025

18. janúar: Samstaða Satúrnusar og Venusar

Þann 18. janúar verða Venusar og tunglið saman á kvöldhimninum í suðvestri. Líttu eftir þeim frá 18:00 til 21. Venus er talsvert bjartari og hvítglóandi en Satúrnus sem er mun daufari og gulleitur. Í handsjónauka er útsýnið glæsilegt og dugir lítill stjörnusjónauki til að sýna hringa Satúrnusar.

Á sama tíma skín Júpíter skært hátt á himni í suðaustri og seinna suðri í stjörnumerkinu Nautinu, skammt frá Aldebaran. Mars er í austri kl. 21, rauðgulur undir tvíburunum Kastor og Pollux.

Samstaða Venusar og Satúrnusar árið 2025

9. febrúar: Tunglið myrkvar Mars

Sunnudagskvöldið 9. febrúar gengur tunglið fyrir reikistjörnuna Mars frá Íslandi séð. Myrkvinn hefst kl. 18:30 og lýkur klukkan 19:27, þegar Mars birtist á ný hægra megin við tunglið.

Tunglið myrkvar Mars 18. desember 2024. Mynd: Gísli Már Árnason

14. mars: Almyrkvi á tungli

Að morgni 14. mars sést almyrkvi á tungli frá Íslandi. Myrkvinn sést reyndar ekki í heild sinni hér á landi, því orðið er bjart þegar almyrkvanum lýkur og tunglið við sjóndeildarhring, skömmu fyrir sólarupprás.

Deildarmyrkvinn hefst kl. 05:10 að morgni. Tunglið er almyrkvað kl. 06:26 þegar farið er að birta. Myrkvinn er svo í hámarki kl. 06:59 en þá er Máninn við sjóndeildarhring í vestri. Almyrkvanum lýkur kl. 07:33 þegar tunglið er komið undir sjónbaug og því ekki sjáanlegt.

Morgunhanar ættu sannarlega að taka daginn snemma þennan föstudagsmorgunn.

Almyrkvi á tungli í september 2015. Mynd: Sævar Helgi Bragason

29. mars: Deildarmyrkvi á sólu

Tveimur vikum síðar, að morgni laugardagsins 29. mars 2025, verður deildarmyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi. Þegar mest lætur hylur tunglið tæplega 70% af skífu sólar frá Reykjavík séð. Þessi fallegi deildarmyrkvi er lokaæfingin fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026.

Í Reykjavík hefst deildarmyrkvinn kl. 10:06 og nær hámarki klukkustund síðar eða kl. 11:05. Deildarmyrkvanum lýkur svo kl. 12:07.

Til að sjá myrkvann er nauðsynlegt að nota sólmyrkvagleraugu. Þú getur keypt þau hjá solmyrkvagleraugu.is Þar getur þú líka fengið sólarsíur fyrir handsjónauka og stjörnusjónauka.

Sólmyrkvi 8. apríl 2024. Mynd: Sævar Helgi Bragason

12. ágúst: Samstaða Venusar og Júpíters

Um miðjan ágúst er aftur orðið nógu dimmt til þess að stjörnur sjáist á himni eftir sumarið. Þriðjudaginn 12. ágúst – þegar nákvæmlega eitt ár er í almyrkvann – verður glæsileg samstaða Venusar og Júpíters á norðausturhimni. Þótt tvíeykið skíni mjög skært er samstaðan afar lágt á lofti yfir Íslandi. Því þarf að gæta þess að hvorki fjöll né háar byggingar byrgi sýn. Líttu eftir dýrðinni í norðaustri um og upp úr klukkan 02:00.

Samstaða Venusar og Júpíters árið 2025

19. september: Samstaða tunglsins, Venusar og Regúlusar

Að morgni föstudagsins 19. september er ærin ástæða til að vakna eldsnemma og gjóa augunum til himins. Í austri birtist stórglæsileg samstaða minnkandi mánasigðar og Venusar sem er ægibjört og við hlið Regúlusar, skærustu stjörnu Ljónsins. Best er að horfa eftir þeim frá kl. 04:30 að sólarupprás. Útsýnið er fallegt með berum augum, enn glæsilegra í handsjónauka.

Samstaða tunglsins, Venusar og Regúlusar árið 2025.

Nóvember: Hringar Satúrnusar hverfa tímabundið sjónum

Í nóvember 2025 hverfa hringar Satúrnusar tímabundið sjónum okkar. Frá Jörðu séð verður Satúrnus á rönd svo örþunnir hringarnir verða nær ósýnilegir. Þetta gerist á 15 ára fresti. Eftir það mun halli hringa Satúrnusar frá Jörðu séð aukast á ný og reikistjarnan endurheimtir glæsileik sinn.

Breytilegur halli Satúrnusar miðað við sjónarhornið frá Jörðinni. Mynd: Damian Peach

13. desember: Loftsteinadrífan Geminítar í hámarki

Um miðjan desember ár hvert þýtur Jörðin í gegnum slóð sem smástirnið 3200 Phaethon hefur skilið eftir á ferðalagi sínu um sólina. Þegar það gerist verður loftsteinadrífan Geminítar til. Geminítar eru gjarnan besta loftsteinadrífa ársins. Þegar mest lætur, 13.-14. desember, má sjá nokkra tugi stjörnuhrapa á klukkustund. Tunglið truflar ekkert þetta kvöld svo aðstæður verða ákjósanlegar, ef veður leyfir.

Jörð næst og fjærst sólu

  • Jörð í sólnánd: 4. janúar kl. 13:28
  • Jörð í sólfirrð: 3. júli kl. 19.:55

Viltu læra meira?

Höfundur
Sævar Helgi Bragason

Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.

Til baka