
Annan ágúst 2027 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Spáni, Norður Afríku og Arabíuskaga. Á Íslandi verður lítilsháttar deildarmyrkvi.
Mánudaginn 2. ágúst 2027 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá suður Spáni, Gíbraltar, Norður Afríku og Arabíuskaga. Frá stærstum hluta Evrópu, þar á meðal á Íslandi, í Afríku og suður Asíu verður deildarmyrkvi. Almyrkvaslóðin liggur yfir eitt þurrasta og sólríkasta svæði heims svo veðurútlitið er sérstaklega hagstætt víðast hvar.
Almyrkvinn nær hámarki nálægt Luxor í Egyptalandi og varir þar í 6 mínútur og 23 sekúndur. Er það lengsti almyrkvi á landi frá árinu 1991 og lengsti almyrkvi á sólu það sem eftir lifir þessarar aldar eða til ársins 2114.
Sólmyrkvinn er númer 38 í Saros 136 myrkvaöldinni sem stendur nú sem hæst og einkennist af löngum almyrkvum. Síðasti almyrkvi í röðinni varð 22. júlí 2009 en hann var 6m 39s yfir Kyrrahafi (lengsti almyrkvi 21. aldar). Næsti myrkvi í röðinni verður 12. ágúst 2045 en hann gengur þvert yfir Bandaríkin frá Kaliforníu til Flórídaskaga þar sem hann varir lengst í 6m 6s. Eftir það fer alskugginn suður yfir norðausturhluta Suður Ameríku.

Almyrkvaslóðin 2. ágúst 2027 liggur yfir tíu lönd: Spán, Marokkó, Alsír, Túnis, Líbíu, Egyptaland, Súdan, Sádi Arabíu, Jemen og Sómalíu. Almyrkvinn hefst við sólarupprás kl. 08:25 að íslenskum tíma þegar alskuggi tunglsins fellur á Atlantshafið nokkurn veginn mitt á milli Flórída í austri og Afríku í vestri. Almyrkvanum lýkur svo í Indlandshafi við sólsetur kl. 11:48 að íslenskum tíma. Á þremur klukkustundum og 23 mínútum ferðast skuggi tunglsins því yfir 15.227 km langt belti á Jörðinni.
Fyrstu 22 mínúturnar er alskugginn yfir Atlantshafinu en nemur loks land kl. 08:47 í Marokkó og á Spáni. Íslendingar sem þar eru ættu sannarlega að hafa sólmyrkvagleraugun með og njóta einstakrar sýningar.

Á Íslandi verður lítilsháttar deildarmyrkvi 2. ágúst 2027 þar sem tunglið hylur innan við 7,5% af skífu sólar. Myrkvinn hefst þegar tunglið snertir sólina í kringum kl. 08:30 að morgni í stefnu kl. ~3 ef við hugsum okkur sólina sem klukkuskífu. Deildarmyrkvinn nær hámarki aðeins um 30 mínútum síðar þegar tunglið hylur lítinn part af suðausturhluta sólarinnar frá okkur séð. Mestur er deildarmyrkvinn í Vík í Mýrdal (7,4%). Sólin verður í aust-suðaustri í um 25 gráðu hæð.
Nota verður sólmyrkvagleraugu á meðan horft er á deildarmyrkvann. Örugg sólmyrkvagleraugu fást í vefverslun Iceland at Night.
Staður | Deildarmyrkvi hefst | Myrkvi í hámarki | % sólar myrkvuð* | Deildarmyrkva lýkur | Lengd sólmyrkva |
|---|---|---|---|---|---|
Reykjavík | 08:30:45 | 08:59:09 | 5,7% | 09:27:59 | 57m 18s |
Hellissandur | 08:33:52 | 08:59:30 | 4,2% | 09:25:32 | 51m 40s |
Ísafjörður | 08:38:49 | 09:01:02 | 2,7% | 09:23:31 | 44m 43s |
Akureyri | 08:37:05 | 09:02:02 | 3,7% | 09:27:21 | 50m 16s |
Egilsstaðir | 08:35:47 | 09:02:52 | 4,6% | 09:30:23 | 54m 37s |
Höfn | 08:31:43 | 09:01:31 | 6,2% | 09:31:52 | 1klst 9s |
Vík | 08:28:10 | 08:59:15 | 7,4% | 09:31:00 | 1klst 2m 50s |
Vestmannaeyjar | 08:28:10 | 08:58:51 | 7,2% | 09:30:12 | 1klst 2m 2s |
Reykjanesbær | 08:30:12 | 08:58:47 | 5,8% | 09:27:56 | 57m 44s |
* lýsir hve mikið flatarmál af sólinni tunglið hylur.
Næsti deildarmyrkvi á sólu sem sést frá Íslandi eftir 2. ágúst 2027 verður miðvikudaginn 26. janúar 2028. Þá hylur tunglið mest 16% af sólinni.
Í Tangier í Marokkó stendur almyrkvinn yfir í 4m 51s en syðst á Spáni, í Tarifa varir hann lengst í 4m 28s. Malaga liggur nálægt norðurmörkum alskuggans og því er almyrkvinn talsvert styttri þar eða 1m 52s. Í Marbella og Costa del Sol svæðinu er almyrkvi í um 3 mínútur.
Tímasetningar í töflunni miðast við staðartíma (+2 klukkustundir íslenskur tími). Sólin verður í austri í um 39 gráðu hæð yfir sjóndeildarhring.
Staður | Lengd almyrkva | Deildarmyrkvi hefst | Almyrkvi hefst | Hámark | Almyrkva lýkur | Deildarmyrkva lýkur |
|---|---|---|---|---|---|---|
Cadíz | 2m 50s | 09:40:46 | 10:45:26 | 10:46:53 | 10:48:21 | 11:59:37 |
Tarifa | 4m 39s | 09:40:54 | 10:45:09 | 10:47:28 | 10:49:48 | 12:00:46 |
Gíbraltar | 4m 28s | 09:41:08 | 10:45:35 | 10:47:49 | 10:50:02 | 12:01:10 |
Marbella | 3m 11s | 09:41:40 | 10:46:50 | 10:48:29 | 10:50:08 | 12:01:54 |
Málaga | 1m 52s | 09:42:07 | 10:48.09 | 10:49:06 | 10:50:02 | 12:02:38 |
Tangier | 4m 50s | 09:40:36 | 10:44:43 | 10:47:08 | 10:49:33 | 12:00:25 |

Iceland at Night í samstarfi við Icelandair Vita bjóða áhugasömum upp á skipulagða almyrkvaferð til suður Spánar frá 29. júlí til 3. ágúst. Nánari upplýsingar verða birtar innan tíðar.
Skuggi tunglsins ferðast hratt yfir Spán og Marokkó og fellur næst á Alsír kl. 08:53 að íslenskum tíma. Algeirsborg, höfuðborg Alsír, er aðeins 15 km fyrir utan norðurmörk almyrkvans svo þar verður 99,7% deildarmyrkvi. Fólk sem þar er statt ætti að færa sig innar í landíð, t.d. til Tebessa (5m 14s) nálægt landamærunum að Túnis eða Timgad (5m 22s) sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þau sem hyggja á ferðalag til Alsír ættu að skoða visitalgeria.dz.
Almyrkvinn lengist og hækkar á lofti þegar hann færist austar. Klukkan 09:07 að íslenskum tíma leggst alskugginn yfir Túnis. Almyrkvinn er þá orðinn meira en 5m 30s á miðri slóðinni. Almyrkvaunnendur sem vilja forðast mannmergð og hita í Egyptalandi, en njóta samt mjög langs almyrkva þar sem heiður himinn er nánast öruggur, leggja flestir leið sína til Túnis. Þar er borgin Sfax ákjósanlegur útsýnisstaður (5m 41s).
Í Túnis geta aðdáendur Star Wars upplifað almyrkvann á tökustöðum í eyðimörkinni við Sidi Bouhlel gljúfri, nærri Tozeur, í 3m 12s og í 4m 10s á Sidi Idriss hótelinu í Gabès sem er frægast fyrir að vera heimili Luke Skywalker. Þau sem hyggja á ferðalag til Túnis ættu að skoða discovertunisia.com.
Á pappír er Líbía einn besti staðurinn til að upplifa almyrkvann hvað skýjafar snertir. Pólitískur óstöðugleiki í landinu veldur því þó að mun færri almyrkvaunnendur fara þangað en ella. Höfuðborg Líbíu, Trípóli, liggur rétt fyrir utan suðurmörk almyrkvans en í Benghazi, sem er í miðju skuggans, stendur hann yfir í 6m 09s.

Iceland at Night á í samvinnu við Amber Adventures ehf um örugga sólmyrkvaferð til Egyptalands. Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar.
Egyptaland verður miðpunktur athyglinnar í almyrkvanum 2. ágúst 2027. Þar nær myrkvinn hámarki á Jörðinni og er lengstur í 6m 23s.
Alskuggi tunglsins nær Egyptalandi kl. 09:38 að íslenskum tíma (12:38 á staðartíma). Í Kaíró verður 94,6% deildarmyrkvi en norðurmörk alskuggans liggja 190 km sunnar, meðal annars yfir stóran hluta Nílarfljóts en fjölmargar bátsferðir eru í boði fyrir myrkvann þar.
Egyptaland er stórfenglegur staður til upplifa myrkvann en því fylgja líka ýmsar áskoranir. Verð á gistingu hefur ekki aðeins margfaldast, heldur ríkir nokkur óvissa um hvort fólk geti hreinlega tekið með sér sjónauka og annan búnað til landsins. Þá þarf að hafa í huga mannmergð á vinsælustu útsýnisstöðunum og steikjandi hita hádegissólarinnar í eyðimörkinni þar sem lítið skjól er að finna.
Almyrkvinn nær hámarki 58 km suðaustur af Luxor sem verður líka helsti áfangastaður almyrkvaunnenda. Þar stendur almyrkvinn yfir í 6m 21. Sól er nánast í hvirfilpunkti (82 gráðu hæð) og nánast eina óvissan er gegnsæi andrúmsloftsins vegna mögulegs ryks frá Sahara-eyðimörkinni.
Í og við Luxor er að finna stórkostlegar egypskar fornminjar: Forn-egypsku borgina Þeba við austurbakka Nílar, Karnakhofið og Dal konunganna. Allt algerlega einstakir staðir til að upplifa almyrkva á sólu.
Tímasetningar í töflunni hér undir miðast við staðartíma (+3 klukkustundir íslenskur tími).
Staður | Lengd almyrkva | Deildarmyrkvi hefst | Almyrkvi hefst | Almyrkva lýkur | Deildarmyrkva lýkur | Sólarhæð |
|---|---|---|---|---|---|---|
Abnub | 6m 0s | 11:35:23 | 12:56:45 | 13:02:48 | 14:21:19 | 80° |
Akhmim | 6m 21s | 11:37:21 | 12:58:53 | 13:05:14 | 14:23:32 | 81° |
Al-Manshah | 6m 22s | 11:37:36 | 12:59:10 | 13:05:22 | 14:23:49 | 81° |
Luxor | 6m 21s | 11:40:56 | 13:02:09 | 13:08:28 | 14:26:36 | 82° |
Tahta | 6m 19s | 11:36:39 | 12:58:06 | 13:04:26 | 14:22:47 | 81° |

Frá Egyptalandi færist alskugginn suðaustur yfir lítið horn í norðaustur Súdan og þaðan yfir Rauðahaf og Arabíuskaga. Sólin lækkar á lofti og almyrkvinn styttist. Mun færri almyrkvaunnendur leggja leið sína til þessara landa þótt slóðin liggi yfir sólríka og sögufræga staði.
Í Sádi Arabíu verður almyrkvi í hafnarborginni Jeddah við Rauðahaf í 5m 57 og hinni heilögu borg Mekka í 5m 7s.
Í Sana, höfuðborg Jemen, upplifir fólk almyrkva í 2m 22s kl. 13:40 að staðartíma en borgin er nálægt suðurjaðri almyrkvaslóðarinnar.
Sómalía er loks síðasta landsvæðið sem alskugginn fer yfir en í miðju skuggans þar er almyrkvi í 5m 30s. Því miður ríkir vargöld í landinu sem veldur því að fólki er ekki ráðlagt að ferðast þangað.
Alskugginn yfirgefur Sómalíu kl. 11:05 að íslenskum tíma (14:05 að staðartíma) og færist yfir Indlandshaf. Kl. 11:48 er almyrkvanum lokið á Jörðinni og skuggi tunglsins varpast aftur út í geiminn.
Tímasetningar í töflunni hér undir miðast við staðartíma (+3 klukkustundir íslenskur tími).
Staður | Lengd almyrkva | Deildarmyrkvi hefst | Almyrkvi hefst | Almyrkva lýkur | Deildarmyrkva lýkur | Sólarhæð |
|---|---|---|---|---|---|---|
Sádi-Arabía | ||||||
Jeddah | 6m 03s | 12:00:31 | 13:22:23 | 13:28:23 | 14:43:49 | 76° |
Mekka | 5m 01s | 12:01:58 | 13:24:05 | 13:29:02 | 14:44:41 | 76° |
Jemen | ||||||
Sana | 2m 36s | 12:21:54 | 13:44:06 | 13:46:39 | 15:00:37 | 67° |
Sómalía | ||||||
Bosaso | 4m 05s | 12:39:43 | 13:58:10 | 14:02:17 | 15:12:00 | 58° |
Í almyrkvanum 2. ágúst 2027 sjást þrjár reikistjörnur á himni. Venus skín skært beint yfir sólinni. Merkúríus verður skáhallt fyrir ofan hana, rétt fyrir neðan Kastor og Pollux í Tvíburunum.
Lægra á lofti, fyrir neðan sólina, verður unnt að koma auga á Júpíter við hlið Regúlusar, skærustu stjörnu Ljónsmerkisins.

Nota þarf sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með deildarmyrkvanum, bæði frá Íslandi og annars staðar þar sem sólmyrkvinn sést. Gleraugun eru aðeins og eingöngu notuð á meðan horft er í átt að sólinni. Ef þú ert einhvers staðar á almyrkvaslóðinni verðurðu að gleraugun af við almyrkva en setja þau upp aftur þegar honum lýkur.
Ennfremur er mikilvægt að hafa með meðferðis:
Sólarvörn 50
Sólhatt
Nóg af vatni og snarl
Skyndihjálparkassa
Virtu siði og venjur í hverju landi. Virtu dýralíf, náttúru og menningarminjar. Taktu allt rusl með þér til baka. Vertu fyrirmyndar ferðamaður.
En umfram allt, njóttu þess að upplifa stórkostlegustu sýningu sem náttúran bíður upp á.
Jamie and Gill Carter: Complete Guide to the Total Solar Eclipse 2027
Fred Espenak: Guide for the Total Solar Eclipse of 2027
Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.