Hringmyrkvi á sólu 26. janúar 2028. Mynd: Andreas Dill / icelandatnight.is

Sólmyrkvinn 26. janúar 2028

Hringmyrkvi í Suður Ameríku, Portúgal og á Spáni en lítilsháttar deildarmyrkvi á Íslandi

Miðvikudaginn 26. janúar 2028 verður hringmyrkvi á sólu sjáanlegur frá Ekvador, Perú, Brasilíu, Súrinam, Portúgal, Spáni og örlitlum hluta af Frakklandi. Frá stórum hluta Norður- og Suður-Ameríku, norðvestur Afríku og hluta Evrópu, þar á meðal Íslandi, verður deildarmyrkvi.

Hringmyrkvi verður þegar tunglið er of langt frá Jörðinni til að hylja sólina alveg. Hringmyrkvinn 26. janúar 2028 nær hámarki í Súrinam og varir þar lengst 10m 27s þegar tunglið hylur 92% af sólinni. Næsti hringmyrkvi sem sést frá Íslandi verður fimmtudaginn 11. júní árið 2048.

Kort af sólmyrkvanum 26. janúar 2028. Mynd: Andreas Dill / icelandatnight.is

Sólmyrkvinn 26. janúar 2028 tilheyrir Saros 141 og er númer 24 af 70 myrkvum í lotunni. Í myrkvanum er sólin í stjörnumerkinu Steingeitinni.

Hvernig verður sólmyrkvinn 26. janúar 2028 á Íslandi?

Á Íslandi verður lítilsháttar deildarmyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi ef vel viðrar og hvorki fjöll né byggingar byrgi sýn. Myrkvinn verður síðdegis þegar sól er mjög lágt á lofti í suð-suðvestri og sest sólin áður áður en myrkva lýkur.

Nota verður sólmyrkvagleraugu á meðan horft er á deildarmyrkvann. Örugg sólmyrkvagleraugu fást í vefverslun Iceland at Night.

Reykjavík

Atburður

Tími

Sólarhæð

Flatarmál sólar myrkuð

Deildarmyrkvi hefst

15:28:27

4,54°

Myrkvi í hámarki

16:24:58

1,27°

16%

Sólsetur

16:54

9,1%

Deildarmyrkva lýkur

17:18:55

-2,85°

Ísafjörður

Atburður

Tími

Sólarhæð

Flatarmál sólar myrkuð

Deildarmyrkvi hefst

15:28:21

3°

Myrkvi í hámarki

16:21:37

0,26°

13,4%

Sólsetur

16:39

10,9%

Deildarmyrkva lýkur

17:12:49

-3,24°

Á Ísafirði hverfur sólin alveg á bak við fjöllin rétt fyrir kl. 16:00 svo hámark myrkva sést ekki þaðan, nema farið sé út úr bænum upp á til dæmis Botnsheiði.

Akureyri

Atburður

Tími

Sólarhæð

Flatarmál sólar myrkuð

Deildarmyrkvi hefst

15:29:07

2,38°

Sólsetur

16:20

16,3%

Myrkvi í hámarki

16:24:49

-0,95°

16,4%

Deildarmyrkva lýkur

17:18:06

-5,01°

Á Akureyri fellur skugginn af fjöllunum í vestri yfir allan bæinn um kl. 15:00 svo fyrri hluti deildarmyrkvans sést ekki frá Akureyri. Akureyringar sem vilja sjá upphaf deildarmyrkvans þyrftu að fara inn í Hörgárdal eða vera austan megin í Eyjafirðinum, t.d. hjá bæjunum í kringum Svertingsstaði.

Egilsstaðir

Atburður

Tími

Sólarhæð

Flatarmál sólar myrkuð

Deildarmyrkvi hefst

15:29:45

1,91°

Sólsetur

16:10

16,8%

Myrkvi í hámarki

16:27:07

-1,88°

18,9%

Deildarmyrkva lýkur

17:21:50

-6,37°

Höfn

Atburður

Tími

Sólarhæð

Flatarmál sólar myrkuð

Deildarmyrkvi hefst

15:29:41

3,2°

Sólsetur

16:26

19,7%

Myrkvi í hámarki

16:28:08

-0,4°

19,7%

Deildarmyrkva lýkur

17:23:51

-5,7°

Vík í Mýrdal

Atburður

Tími

Sólarhæð

Flatarmál sólar myrkuð

Deildarmyrkvi hefst

15:28:58

4,7°

Myrkvi í hámarki

16:27:26

1,2°

18,5%

Sólsetur

16:48

14,1%

Deildarmyrkva lýkur

17:23:09

-3,6°

Skuggi af Reynisfjalli fellur yfir stærstan hluta bæjarins þegar myrkvinn nær hámarki. Víkurbúar þurfa því flestir að færa sig austar eða vestur fyrir Reynisfjall.

Vestmannaeyjar

Atburður

Tími

Sólarhæð

Flatarmál sólar myrkuð

Deildarmyrkvi hefst

15:28:42

5,0°

Myrkvi í hámarki

16:26:44

1,6°

17,7%

Sólsetur

16:53

11,3%

Deildarmyrkva lýkur

17:22:05

-2,8°

Hvar sést hringmyrkvinn 26. janúar 2028?

asdf

Hvernig fylgist ég með sólmyrkvanum á öruggan hátt?

Nota þarf sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með deildarmyrkvanum, bæði frá Íslandi og annars staðar þar sem sólmyrkvinn sést. Gleraugun eru aðeins og eingöngu notuð á meðan horft er í átt að sólinni. Ef þú ert einhvers staðar á almyrkvaslóðinni verðurðu að gleraugun af við almyrkva en setja þau upp aftur þegar honum lýkur.

Ennfremur er mikilvægt að hafa með meðferðis:

  • Sólarvörn 50

  • Sólhatt

  • Nóg af vatni og snarl

  • Skyndihjálparkassa

Virtu siði og venjur í hverju landi. Virtu dýralíf, náttúru og menningarminjar. Taktu allt rusl með þér til baka. Vertu fyrirmyndar ferðamaður.

En umfram allt, njóttu þess að upplifa stórkostlegustu sýningu sem náttúran bíður upp á.

Ítarefni

Höfundur

Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.

Til baka