
Sunnudagsmorguninn 26. júní árið 2196 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 12. ágúst 2026. Almyrkvi sést frá Vestfjörðum og hugsanlega litlum hluta af Snæfellsnesi en annars staðar á landinu, þar á meðal í Reykjavík, verður djúpur deildarmyrkvi. Á Íslandi varir almyrkvinn lengst við Straumnesvita, 1m 36s. Minnstur deildarmyrkvi verður við Lónsfjörð á suðausturlandi, 94%.
Almyrkvinn hefst við sólarupprás í Labradorhafi, skammt sunnan við Grænland. Slóðin liggur síðan yfir Ísland, Svalbarða, rússnesku eyjaklasana Frans Jósefsland og Kíroveyjar í Íshafi, Síberíu, meginland Rússlands og endar við sólsetur í Okhotskhafi. Almyrkvinn varir lengst í 2m 12s nyrst í Síberíu. Myrkvaslóðin er mest 208 km á breidd.
Sólmyrkvinn 26. júní 2916 tilheyrir Saros 130 sem telur 73 sólmyrkva, þar af 43 almyrkva. Fyrsti myrkvinn í lotunni varð 20. ágúst 1096 en sá seinasti verður 25. október 2394.
Staður | Lengd almyrkva | Deildarmyrkvi hefst | Almyrkvi hefst | Myrkvi í hámarki | Almyrkva lýkur | Deildarmyrkva lýkur | Sólarhæð |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
Reykjavík | - | 05:42:56 | - | 06:36:57 (97,9%) | - | 07:33:24 | 15° |
Hellissandur | - | 05:44:37 | - | 06:38:30 (99%) | - | 07:34:43 | 15° |
Reykhólar | - | 05:44:48 | - | 06:39:02 (99,6%) | - | 07:35:36 | 16° |
Látrabjarg | 1m 28s | 05:45:35 | 06:38:47 | 06:39:31 (100%) | 06:40:15 | 07:35:41 | 15° |
Ísafjörður | 1m 26s | 05:45:57 | 06:39:27 | 06:40:10 (100%) | 06:40:53 | 07:36:38 | 16° |
Akureyri | - | 05:44:01 | - | 06:38:54 (97,7%) | - | 07:36:13 | 13° |
Egilsstaðir | - | 05:42:33 | - | 06:37:54 (100%) | - | 07:35:50 | 19° |
Höfn | - | 05:41:17 | - | 06:36:20 (94,2%) | - | 07:34:00 | 18° |
Vík | - | 05:41:07 | - | 06:35:24 (95,3%) | - | 07:32:16 | 16° |
Vestmannaeyjar | - | 05:41:32 | - | 06:35:39 (96,1%) | - | 07:32:17 | 15° |
Reykjanesbær | - | 05:42:58 | - | 06:36:52 (98,1%) | - | 07:33:10 | 15° |
Með tíð og tíma breytist snúningur Jarðar örlítið af ýmsum ástæðum svo misræmi verður milli almanakstíma og heimstíma, kallað DeltaT, en sú stærð er ein sú allra mikilvægasta í myrkvaútrekningum. Nákvæmt gildi á DeltaT er aðeins hægt að vita með vissu eftir að myrkvi er yfirstaðinn. Hægt er að reikna það út með mikilli nákvæmni í fortíðinni og áætla með ágætri vissu næstu áratugi. Þannig erum við næstum handviss um að DeltaT verði milli 69s og 70s fyrir almyrkvana 2027 og 2028.
Málið vandast þegar spár eru gerðar marga áratugi og aldir fram í tímann. Ef bornir eru saman útreikningar á myrkvanum með mismunandi DeltaT sést þetta vel því DeltaT hefur áhrif á nákvæmlega hvar alskugginn fellur á Jörðina. Ef DeltaT verður 470s árið 2196 fellur alskugginn vel yfir Snæfellsnes. Þessi spá er þó tveggja áratuga gömul.

Verði DeltaT nær 190s, eins og sumar nútímaspár gera ráð fyrir, snertir alskugginn Snæfellsnes við Rif og Hellissand naumlega og þar gæti almyrkvi þá sést í augnablik.

Verði DeltaT nær 164s, eins og aðrar nútímaspár gera ráð fyrir, fellur alskugginn rétt vestan við Snæfellsnes og þá sést almyrkvi aðeins á Vestfjörðum.

Áætluð óvissa um DeltaT í lok 22. aldar er um 10-15s, hugsanlega meiri. Enginn veit það fyrir víst. Eins og sakir standa er líklegra að DeltaT verði 170-200s en ekki 450s líkt og eldri spár gerðu ráð fyrir. Verði svo snertir alskugginn ekki Snæfellsnes.