Fulla febrúartunglið dýfir sér inn í hálfskugga Jarðar laugardagskvöldið 20. febrúar, rétt fyrir neðan glæsilega samstöðu Mars, Júpíters og Regúlusar
Laugardagskvöldið 20. febrúar 2027 verður tunglið ekki aðeins fullt, heldur fellur hálfskuggi Jarðar á það svo úr verður lítilsháttar tunglmyrkvi. Og það sem meira er, þá er um að ræða næst nálægasta fulla tungl ársins. Þetta kvöld verður það 363 306 km frá miðju Jarðar og fellur því undir skilgreininguna á „ofurmána“, þótt fátt sé ofur við það.
Alla jafna er mjög erfitt að koma auga á hálfskuggamyrkva því birtan dvínar svo lítið nema myrkvinn sé mjög djúpur eins og raunin er þetta febrúarkvöld. Þegar myrkvinn nær hámarki kl 23:12 eru 93% tunglsins innan hálfskuggans. Nyrðri hlutinn verður þá bersýnilega dimmari en suðurhlutinn. Mögulega verður unnt að koma auga á þennan birtumun um það bil tuttugu mínútum fyrr, svo gjóaðu augunum að tunglinu rétt fyrir klukkan 23 þetta kvöld.
Atburður | Tímasetning | Hæð tunglsins |
|---|---|---|
Tunglris | 17:55 | |
Hálfskuggamyrkvi hefst | 21:12 | 18,7° |
Myrkvi í hámarki | 23:12 | 29° |
Hálfskuggamyrkva lýkur | 01:13 (21. febrúar) | 34° |
Myrkvinn stendur yfir í 4 klst og 1 mínútu og er tunglið í Ljónsmerkinu.
Ekki er þörf á neinum sjóntækjum til að sjá tunglmyrkva, öfugt við sólmyrkva. Aftur á móti er skemmtilegra að fylgjast með tunglmyrkvum í gegnum handsjónauka eða litla stjörnusjónauka.
Auðvelt er að taka myndir af tunglmyrkvum með DSLR eða speglalausum myndavélum og góðri linsu með langa brennivídd, t.d. 400mm og lengri. Nota þarf stöðugan þrífót á meðan almyrkvanum stendur þegar lengja þarf lýsingartímann.
Erfiðara er að taka mynd af tunglmyrkva með snjallsíma því skífan verður agnarsmá. Þess í stað mælum við með því að nota stjörnusjónauka og taka mynd í gegnum augngler sjónaukans, eða kaupa þar til gert millistykki.
Vandaður sjónauki á rafdrifnu sjónaukastæði er vitaskuld besta leiðin til að fanga fegurð myrkvans á mynd.
Tunglmyrkvar verða þegar sólin, Jörðin og tunglið raðast í beina línu svo tunglið gengur inn í skugga Jarðar. Við almyrkva fer tunglið inn í dimmasta hluta jarðskuggans, sem kallast alskuggi. Í alskugganum tekur tunglið á sig rauðleitann blæ og eru þeir þess vegna stundum kallaðir „blóðmánar“.
Tunglmyrkvar eru ekki mánaðarleg fyrirbæri því braut tunglsins um Jörðina hallar um 5 gráður, svo oftast fer tunglið yfir eða undir jarðskuggann.
Næstu deildar- og almyrkvar á tungli sem sjást frá Íslandi verða:
12.janúar 2028 - Deildarmyrkvi
31. desember 2028 - Almyrkvi
26. júní 2029 - Almyrkvi
20. desember 2029 - Almyrkvi
18. október 2032 - Almyrkvi
14. apríl 2033 - Almyrkvi
Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.