XX
22. janúar kl. 12:17 – Nálægasta fulla tungl ársins, 357644 km frá miðju Jarðar, „ofurmáni“
20. febrúar kl. 23:23, hálfskuggamyrkvi á tungli, næst-nálægasta fulla tungl ársins, 363306 km frá miðju Jarðar, „ofurmáni“
22. mars kl. 10:44
20. apríl kl. 22:27
20. maí kl. 10:59
19. júní kl. 00:44, þriðja minnsta fulla tungl ársins, 401951 km frá miðju Jarðar
18. júlí kl. 15:45, næst minnsta fulla tungl ársins, 405973 km frá miðju Jarðar
17. ágúst kl. 07:29, minnsta fulla tungl ársins, 405078 km frá miðju Jarðar
15. september kl. 23:04
15. október kl. 13:47
14. nóvember kl. 03:26
13. desember kl. 16:09
Vorjafndægur: 20. mars kl. 20:25
Sumarsólstöður: 21. júní kl. 14:11
Haustjafndægur: 23. september kl. 06:02
Vetrarsólstöður: 22. desember kl. 02:43
Jörð í sólnánd: 3. janúar kl. 02
Jörð í sólfirrð: 5. júli kl. 06
6. febrúar – Hringmyrkvi á sólu (sést ekki frá Íslandi)
20. febrúar – Hálfskuggamyrkvi á tungli (vart greinilegur)
18. júlí – Hálfskuggamyrkvi á tungli (sést ekki frá Íslandi)
2. ágúst – Almyrkvi á sólu (lítilsháttar deildarmyrkvi á Íslandi)
17. ágúst – Hálfskuggamyrkvi á tungli (sést ekki frá Íslandi)
Sjá nánar: Hálfskuggamyrkvi á næst nálægasta fulla tungli ársins 20. febrúar 2027
Laugardagskvöldið 20. febrúar 2027 verður djúpur hálfskuggamyrkvi á næst nálægasta fulla tungl ársins, „ofurmána“.
Þegar myrkvinn nær hámarki kl 23:12 eru 93% tunglsins innan hálfskuggans. Nyrðri hlutinn verður þá bersýnilega dimmari en suðurhlutinn. Mögulega verður unnt að koma auga á þennan birtumun tuttugu mínútum fyrr, svo gjóaðu augunum að tunglnu rétt fyrir klukkan 23 þetta kvöld.
Við hámark myrkvans verður tunglið í 29 gráðu hæð í suðaustri. Fyrir ofan tunglið raðast glæsileg Mars, Júpíter og Regúlus, bjartasta stjarna Ljónsmerkisins, glæsilega upp.
Júpíter, Mars og tunglið auk Regúlusar 23, janúar, 20. febrúar, 19. mars og 16. apríl
Satúrnus liggur vel við athugun árið 2027 - Er í fiskamerkinu - fyrri hluta árs er hann í suðr- og suðvestri á snemma kvöldin í janúar og febrúar en hverfur sjónum okkar í mars. Í lok ágúst birtist hann á ný og er hæst á lofti i suðri seint á næturnar og undir morgun, í október laust eftir miðnætti, nóvember fyrir miðnætti en að kvöldi til í desember,
Tunglið og Satúrnus eiga mánaðarlegt stefnumót á árinu
Sjá nánar: Sólmyrkvinn 2. ágúst 2027

Á Íslandi verður lítilsháttar deildarmyrkvi 2. ágúst 2027 þar sem tunglið hylur innan við 7,5% af skífu sólar. Myrkvinn hefst þegar tunglið snertir sólina í kringum kl. 08:30 að morgni í stefnu kl. ~3 ef við hugsum okkur sólina sem klukkuskífu. Deildarmyrkvinn nær hámarki aðeins um 30 mínútum síðar þegar tunglið hylur lítinn part af suðausturhluta sólarinnar frá okkur séð. Mestur er deildarmyrkvinn í Vík í Mýrdal (7,4%). Sólin verður í aust-suðaustri í um 25 gráðu hæð.
Á suður Spáni, Gíbraltar, Norður Afríku og Arabíuskaga verður almyrkvi á sólu. Almyrkvaslóðin liggur yfir eitt þurrasta og sólríkasta svæði heims svo veðurútlitið er sérstaklega hagstætt víðast hvar. Almyrkvinn nær hámarki nálægt Luxor í Egyptalandi og varir þar í 6 mínútur og 23 sekúndur. Er það lengsti almyrkvi á landi frá árinu 1991 og lengsti almyrkvi á sólu það sem eftir lifir þessarar aldar eða til ársins 2114.

3.-4. janúar: Kvaðrantítar – Fullt tungl hefur talsverð áhrif á fjölda sýnilegra stjörnuhrapa. Búast má við að innan við tíu hröp sjáist á klukkustund í kringum hámarkið, um og upp úr kl. 21 að kvöldi 3. janúar.
21-22. apríl: Lýrítar – Þegar best lætur gætirðu séð um og yfir tíu stjörnuhröp á klukkustund í drífunni. Tunglið er vaxandi sigð og hefur engin áhrif. Hins vegar er ekki lengur fullkomið myrkur. Horfðu í átt að stjörnumerkinu Hörpunni í kringum miðnætti.
12.-13. ágúst: Persítar – Oft ein besta loftsteinadrífa ársins. Við hámarkið geta sést um 100 stjörnuhröp en þar sem ekki er enn orðið fullkomlega dimmt sjást aðeins björtustu stjörnuhröpin nálægt miðnætti. Þau geta skipt tugum. Horfðu í norðausturátt.
21-22. október: Óríonítar – Drífan er virk allan mánuðinn. Við hámarkið má gera ráð fyrir að sjá um og yfir 15 stjörnuhröp á klukkustund. Þau eru þekkt fyrir að vera hraðfleyg og eiga rætur að rekja til halastjörnunnar Halley.
4-5. nóvember: Tárítar – Drífan er virk allan mánuðinn og þekkt fyrir hæg, björt stjörnuhröp eða vígahnetti. Við hámarkið má búast við að sjá innan við tíu stjörnuhröp á klukkustund. Horfðu í átt að Nautinu nálægt miðnætti.
16-17. nóvember: Leonítar – Drífan er virk nánast allan mánuðinn en við hámarkið má jafnan sjá í kringum tug stjörnuhrapa á klukkustund. Horfðu í átt að Ljónsmerkinu eftir miðnætti.
13.-14. desember: Geminítar – Jafnan kröftugasta loftsteinadrífa ársins yfir Íslandi. Þegar best lætur sjást nokkrir tugir stjörnuhrapa á klukkustund. Horfði í átt að Tvíburunum nálægt miðnætti. Tunglið er fullt sama kvöld og því sjást mun færri stjörnuhröp en alla jafna.
21-22. desember: Úrsítar – Fremur róleg loftsteinadrífa þar sem gjarnan sést um tugur stjörnuhrapa á klukkustund. Horfðu í átt að Karlsvagninum.
Þegar reikistjarna er í gangstöðu (e. opposition) er hún í beinni línu við sólina og Jörðina. Þá rís hún í austri við sólsetur, er hæst á lofti í suðri um miðnætti og sest við sólris. Við gagnstöðu eru reikistjörnurnar næst Jörðu, skærastar á himni og liggja þá best við athugun.
11. febrúar: Júpíter
19. febrúar: Mars
28. september: Neptúnus
18. október: Satúrnus
30. nóvember: Úranus
Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.